Það er fátt snjallara í undirbúningi stærstu ferðahelgar ársins en að skella í smávegis heimabaskstur og þessar dásemdar pítsustangir eru með því snjallara sem hægt er að grípa með.
Þær koma frá Svövu Gunnars á Ljúfmeti og lekkerheit og auðvelt er að skipta pepperóníinu fyrir hvaða álegg sem þið viljið.
mbl.is/Svava Gunnarsdóttir
Pizzastangir með pepperoni
- 1 rúlla pizzadeig
- 3-4 tsk. ítölsk hvítlauksblanda
- 1/2 tsk. red pepper flakes
- 6 msk. rifinn parmesan
- 3 msk. ólífuolía
- 1 bréf pepperoni (um 120 g)
- rúmlega 1/2 poki rifinn mozzarella (um 120 g)
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°.
- Blandið ítalskri hvítlauksblöndu, red pepper flakes og rifnum parmesan saman í skál.
- Rúllið deiginu út (eða fletjið það út í ferhyrning ef notað er heimagert) og stráið helmingnum af kryddblöndunni yfir deigið.
- Skerið pepperoni í fernt og dreifið yfir helminginn af deiginu. Brjótið helminginn sem er ekki með pepperoni yfir pepperoni-helminginn, þannig að fyllingin verði inni í. Skerið deigið í stangir og snúið hverri stöng í nokkra hringi.
- Penslið yfir brauðstangirnar með ólífuolíu og stráið kryddblöndu yfir. Færið brauðstangirnar yfir á bökunarplötu með bökunarpappír og snúið krydduðu hliðinni niður.
- Penslið með olíu og stráið kryddblöndu yfir (þannig að það er olía og krydd bæði undir og yfir brauðstöngunum) og bakið í 8-10 mínútur, eða þar til brauðstangirnar eru orðnar gylltar og fallegar.
mbl.is/Svava Gunnarsdóttir
mbl.is/Svava Gunnarsdóttir
mbl.is/Svava Gunnarsdóttir
mbl.is/Svava Gunnarsdóttir