Það er ekkert skemmtilegra en að dekka upp borð þegar von er á góðum gestum – að nostra við matarborðið þar sem hugmyndaflugið eitt ræður ferðinni. Þegar þig langar til að leggja fallega á borð – eitthvað annað en flatan disk með hnífapörum uppstilltum þar við hlið – eru nokkrar smart hugmyndir hér að neðan.
Einfalt litaþema poppað upp með bláum munnþurrkum og blómum.
mbl.is/Stylizimoblog
Prófaðu að binda um servíettuna miðja, það kemur skemmtilega á óvart.
mbl.is/Stylizimoblog
Kertastjakar í ýmsum stærðum og gerðum skapa stemninguna.
mbl.is/Stylizimoblog
Hör servíettur og diskamottur gefa hlýjan blæ á móti svörtum stálhnífapörum og leirtauinu.
mbl.is/Stylizimoblog
Frábær hugmynd að koma borðkortinu fyrir á gafflinum.
mbl.is/Stylizimoblog
Stundum er eitt blóm eða grein það sem setur punktinn yfir i-ið.
mbl.is/Stylizimoblog