Hver elskar ekki alvörukjötsúpu - hvað þá þegar haustið er í lofti og kominn hrollur í kroppinn? Hér gefur að líta útgáfu frá Maríu Gomez á Paz.is en hér er um að ræða spænska útgáfu af kjötsúpu sem María fullyrðir að sé frábær.
Við hvetjum ykkur til að prófa - það sakar ekki og það er aldrei að vita nema sú spænska standi jafnfætis þeirri íslensku.
Öðruvísi kjötsúpa en þú átt að venjast
- Ólífuolía
- 1 kg úrbeinaður grísahnakki eða annað grísakjöt (gúllas t.d). Ef þið viljið ekki nota grís þá má nota kjúkling í staðinn.
- 3 stórar bökunarkartöflur
- 2 grænar paprikur
- 2 gulir laukar
- 4-6 hvítlauksrif
- 150-200 gr grænar strengjabaunir (Haricods, til frosnar og ferskar í Bónus, má hvort sem er)
- Stórt glas af grænum linsubaunum (þurfa ekki að vera útbleyttar)
- 2 lítrar af vatni
- 2 svínasoðsteningar
- salt og pipar
- Colorante (gulur litur sem er keyptur á Spáni) hægt er að nota saffran eða smá turmerik til að fá gulan lit á súpuna í staðinn.
Aðferð:
- Afhýðið laukana, takið hýðið af hvítlauksgeirunum og skerið paprikur í 6 ræmur langsum.
- Skrælið bökunarkartöflurnar og skerið í ágætisbita, ekki pínulitla heldur frekar stóra.
- Skerið næst laukana í fjóra parta langsum og berjið aðeins á hvítlaukskrifin.
- Setjið olíu í stóran pott þannig hún hylji botninn á pottinum.
- Setjið svo laukinn, hvítlaukinn og paprikuna út á heita olíuna og saltið vel og piprið.
- Leyfið grænmetinu að steikjast vel við háan hita og passið að hræra vel í því á meðan. Ilmurinn verður dásamlegur, ég lofa.
- Þegar grænmetið er byrjað að mýkjast setjið þá kjötið, sem er skorið í gúllasbita, út í pottinn með grænmetinu og leyfið því að taka á sig gráan lit. Þarf ekki að steikjast þannig að það verði brúnað. Saltið aftur vel yfir kjötið og piprið.
- Gott er að vera búin að sjóða vatn í hraðsuðukönnu og því svo hellt (2 lítrum) út á kjötið og tveir svínasoðsteningar með.
- Næst eru svo kartöflurnar, linsubaunirnar og strengjabaunirnar settar út á og suðan látin koma upp.
- Smakkið súpuna til og saltið eftir smekk. Ég vil hafa hana vel salta en þannig finnst mér hún langbest og bragðmest.
- Látið hana sjóða við vægan hita undir pottloki í minnst 30 mínútur.
- Best er að bera hana fram með stökku Baguette-brauði sem gott er að dýfa í heita súpuna.