Lambaskankar standa alltaf fyrir sínu og þessi uppskrift er í senn fremur auðveld auk þess sem hún tryggir að allt húsið ilmar dásamlega meðan skankarnir malla. Það er Eva Laufey sem á þessa uppskrift en matarbloggið hennar er hægt að heimsækja HÉR.
Hægeldaðir lambaskankar með hökkuðum tómötum og rósmarín
Þessi uppskrift er tilvalin á haustin eða að vetri til, þegar við þurfum sárlega á mat að halda sem yljar okkur að innan. Það er líka eitthvað svo sérstaklega notalegt að hægelda mat – það færist svo mikil ró yfir heimilið.
- 4 lambaskankar, snyrtir
- 1 msk ólífuolía eða smjör
- Salt og pipar
- 1 laukur
- 5 gulrætur
- 400 ml hakkaðir tómatar + 1 dl soðið vatn
- 4 msk rósmarín
- 300 g perlukúskús
Aðferð:
- Hitið ofninn í 160°C.
- Brúnið lambaskankana á öllum hliðum upp úr smjöri í góðum potti sem má fara inn í ofn. Kryddið til með salti og pipar.
- Látið skankana standa með beinið upp í pottinum.
- Skerið grænmetið smátt og setjið út í pottinn ásamt rósmarín, hökkuðum tómötum og 1 dl af soðnu vatni.
- Setjið lok á pottinn og inn í ofn við 160°C í 2-3 klukkustundir. Það er gott ráð að ausa yfir kjötið tvisvar til þrisvar sinnum.
- Þegar um það bil hálftími er eftir af eldunartímanum takið þið lokið af pottinum og eldið áfram í hálftíma.
- Berið fram með perlukúskús sem þið eldið samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum.