Það er fátt notalegra en bað með ilmandi baðsalti, hvað þá þegar baðsaltið er heimagert.
mbl.is/Rikke Bjurstrøm
Það er fátt meira nærandi en að gefa sér tíma fyrir heitt og gott bað og hvað þá með ilmandi baðsalti. Þú þarft ekki að fara út í búð og kaupa það dýrum dómum þegar þú getur búið það til í eldhúsinu heima.
Heimagert baðsalt
- Gróft sjávarsalt
- 1 stór skál
- Matarlitur
- Ilmkjarnaolía, t.d. appelsínu, lavander eða piparmyntu
Aðferð:
- Heltu saltinu í skál og bættu við matarlit. Hrærið vel svo að liturinn dreifist jafnt um saltið.
- Bætið við ilmkjarnaolíu, a.m.k. 5 dropar á móti hverjum dl af salti.
- Setjið baðsaltið í loftþétta krukku og leyfið blöndunni að taka sig í 2-3 daga, þar til ilmkjarnaolían hefur blandast vel við saltið. Eftir það getur baðsaltið staðið í opnu íláti.