Við erum eflaust öll „sek“ um að setja allt of mikinn mat í frysti, þá í geymslu sem endar í gleymsku. Sumir eru góðir í að taka frystinn reglulega í gegn og borða allt sem í honum finnst á meðan það eina sem fer hratt úr frystikistu annarra eru frostpinnar og beyglur, annað gleymist. Og þá kemur upp hugsunin ÓFH (Óþekktur-Frosinn-Hlutur) og við byrjum að hugsa með okkur hvenær og hvernig þetta endaði í frystinum. Hér eru nokkur atriði hvað mat og frysti varðar:
- Ekki frysta gamlan mat. Ástæðan fyrir frysti er sú að halda matnum ferskum.
- Merktu pokana eða ílátin með innihaldi og dagsetningu. Það mun auðvelda allt.
- Verið viss um að pokar eða önnur ílát séu vel lokuð áður en þú setur inn í frysti því annars er hætta á að frost setjist á matinn.
- Passið að pakka hæfilegum skammtastærðum í frysti, þannig að þú sért ekki að taka út t.d. nautahakk fyrir átta manns og láta þiðna þegar þig vantar bara í skammt fyrir fjóra.
- Ef þú ert ekki viss hversu lengi ákveðin matvæli hafa legið í frysti – hentu þeim þá. Það er ekki þess virði að taka neina sénsa hvað það varðar.
Gleymdur matur í frysti er algengt „vandamál“ á mörgum heimilum.
mbl.is/Shutterstock