Þessi kaka ætti að vera á hverju veisluborði. Hér er um að ræða sameiningartákn þjóðarinnar: allt það sem við elskum heitast þegar kemur að kökum. Um það þarf engar frekari umræður - njóti vel!
Kakan heitir Fjöskyldubomba Berglindar enda kemur hún úr smiðju Bergindar Hreiðars á Gotteri.is sem ákvað að baka hana fyrir fjölskylduna á dögunum. Púðursykurmarengsinn er uppskrift frá pabba hennar og að sögn Berglindar er þetta besti marengs í heimi
Fjölskyldubomba Berglindar
Botn og marengstoppar
- 5 eggjahvítur
- 5 dl púðursykur
Toppur
- 600 ml rjómi
- Þristur 10 stk mini (í pokunum)
- 3 x kókosbollur (hver skorin í 3 bita)
- 10 marengstoppar
- 250 gr jarðaber
- 125 gr bláber
Lakkríssósa
- 10 stk lakkrískaramellur frá Karamel Kompagniet (fást í Dimm netverslun)
- 3 msk rjómi
Aðferð:
- Byrjið á því að baka botn og marengstoppa (þetta má alveg gera nokkrum dögum fyrr). Þeytið saman eggjahvítur og púðursykur þar til topparnir verða stífir og halda lögun sinni.
- Setjið nokkrar sleifar af blöndunni í sprautupoka með hringlaga stút um 1,5 cm í þvermál fyrir toppana. Teiknið hring um 25-30 cm í þvermál á bökunarpappír (á bökunarplötu) fyrir botninn og smyrjið restinni af marengsinum jafnt í hring.
- Bakið við 140°C, toppana í 40 mínútur en botninn áfram í 20 mín til viðbótar (samtals í klukkustund) og kælið alveg.
- Þeytið rjómann og smyrjið yfir marengsbotninn. Skerið þrist og kókosbollur niður og raðið ofan á rjómann ásamt jarðaberjum, bláberjum og marengstoppum.
- Bræðið saman lakkrískaramellur og rjóma við vægan hita þar til þykk lakkríssósa myndast.
- Leyfið hitanum að rjúka aðeins úr og setjið vel af sósu yfir allt saman.
mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir