Halloween hefur tekið miklum vinsældum hér á landi í gegnum árin. Þessi dagur er haldinn hátíðlegur í Bandaríkjunum af börnum og ekki síst fullorðnum. Það er mikið lagt í skreytingar við húsin og flestir bjóða upp á einhvers konar „hrylling“ til að maula á. Hér kemur uppskrift að blóðugum augum fyrir þá sem taka þessa hefð alla leið.
Blóðug augu (12 stykki)
- 2 bollar flórsykur, sigtaður
- ½ bolli mjúkt hnetusmjör
- 3 msk. mjúkt smjör
- Hvítt súkkulaði
- 24 súkkulaðidropar eða M&M´s
- 1 msk. vatn
- Rauður matarlitur
Aðferð:
- Setjið 1 bolla af flórsykri, hnetusmjör og smjör í ílát. Mótið í litlar kúlur og setjið á smjörpappír og í kæli í 30 mínútur.
- Bræðið hvíta súkkulaðið undir vatnsbaði og dýfið kúlunum út í. Setjið litla súkkulaðihnappana strax á kúlurnar sem augu og leyfið súkkulaðinu að harðna í sirka 30 mínútur.
- Blandið saman vatni og matarlit í restina af flórsykrinum. Setjið í sprautupoka og klippið lítið gat fremst á pokann. Skreytið súkkulaðikúlurnar eins og lekandi blóð og berið fram í næsta partíi.