Við föllum kylliflöt fyrir nýjustu vörulínu FÓLK! Enn og aftur sjáum við dásemdar-vörur sem skilja eitthvað eftir í hjartanu – sem er alveg við það að bráðna niður á gólf. Urban Nomad-hillurnar voru fyrsta varan frá FÓLK og sjást þær víða í eldhúsum landans, en þær hafa líka sett allt á hliðina þar ytra og birtast í hönnunartímaritum út um allan heim eins og Elle Décor Italia, Bo Bedre, BoligMagasinet og Architectural Digest, svo eitthvað sé nefnt.
Flestir skreyta eldhúsin sín nú til dags með meiru en bara ristavél og sleifum, og það þykir hámóðins að hengja upp léttar hillur og stilla þar upp leirtaui í bland við aðra skrautmuni eins og myndum og kertastjökum. En það voru einmitt að koma nýir kertastjakar sem einnig þjóna tilgangi vasa frá FÓLK, úr marmara og messing sem stela allri athyglinni.