Súkkulaði-unaður sem brotnar léttilega í munni og skilur eftir sig keim af myntu. Við höfum sagt allt sem segja þarf hvað þessi girnilegu After Eight-stykki varðar. Þessi einfalda uppskrift er alltaf að fara að prófast.
After Eight-draumur (12 stk.)
- 100 g rjómasúkkulaði
- 100 g dökkt súkkulaði
- 150 g núggat
- 50 g hnetur
- 50 g After Eight
- 50 g litlir sykurpúðar
Aðferð:
- Hakkið bæði rjóma- og dökka súkkulaðið niður og bræðið í skál yfir vatnsbaði ásamt núggatinu.
- Hakkið hneturnar og After Eight-plöturnar og bætið út í súkkulaðiblönduna ásamt sykurpúðunum.
- Hellið blöndunni í form, sirka 10x25 cm (helst plastform), og geymið í ísskáp yfir nótt.
- Þrýstið súkkulaðinu úr forminu og skerið í langa strimla, sirka 1½ cm þykkt. Geymist best í kæli.