Ef einhver getur staðist þessa freistingu þá fær hinn sami vegleg verðlaun enda er þetta svo girnilegur réttur að ekki er annað hægt en að fá vatn í munninn.
Það er engin önnur en Linda Ben sem á heiðurinn að þessari uppskrift sem er algjörlega dásamleg og fullkomin á degi sem þessum.
Matarbloggið hennar Lindu er hægt að heimsækja HÉR.
Grænmetis lasagne með sveppum og spínati
- Pastella fersk lasagna blöð
- 500 g sveppir
- 1 rauðlaukur
- 1 msk ólífu olía
- 70 g tómatpúrra
- 450 ml einföld pastasósa
- 1 dós hakkaðir tómatar
- 100 g spínat
- 250 g kotasæla
- Rifinn mosarella ostur (mjög gott að kaupa rúllu af mosarella og rífa hálfa niður)
- 1 msk þurrkað oreganó
- 1-2 tsk þurrkað basil
- 1 tsk þurrkað timjan
- ½ tsk þurrkað rautt chillí
- ½ tsk salt
- ½ tsk pipar
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 200ºC.
- Skerið sveppina niður í bita, þannig að áferðin líkist grófu hakki. Steikið þá á þurri pönnu á meðal heitri pönnu og setjið klípu af salti yfir. Fljótlega byrjar vökvi að koma út úr sveppunum.
- Skerið rauðlaukinn smátt niður og setjið út á pönnuna með sveppunum ásamt ólífu olíu og steikið þar til vökvinn af sveppunum hefur gufað upp.
- Setjið því næst er tómatpúrru bætt á pönnuna, pastasósu og hökkuðum tómötum. Kryddið með oreganó, basil, timjan, chilli, salti og pipar. Steikið áfram á pönnunni í um það bil 10 mín eða þar til sósan er orðin þykk og kraftmikil.
- Setjið þunnt lag af sósu í botninn og setjið lasagna blöð yfir sósuna. Setjið 2-3 msk af kotasælu yfir, ásamt spínati og rifnum mosarella. Endurtakið þessi skref 2-3x og toppið með rifnum mosarella.
- Bakið inn í ofni í 20 mín. Leyfið lasagnanu að taka sig í 10 mín áður en það er skorið.