Morgunverðarvöfflur eins og þær gerast bestar! Hér er það engin önnur en Chrissy Teigen sem deilir uppskrift úr bók sinni Cravings: Hungry for more sem kom út á dögunum. Uppskriftin er alveg hreint upp á tíu og sannarlega til þess fallin að gera sunnudaginn enn betri.
Chrissy Teigen er mikill ástíðukokkur.
mbl.is/
Morgunverðarvöfflur Chrissy Teigen
- 1 bolli hveiti
- 1 tsk lyftiduft
- ½ tsk matarsódi
- 1 tsk nýmalaður svartur pipar
- 1 ¼ bolli súrmjólk
- 3 msk bráðið smjör
- 1 stórt egg
- 1 ½ bolli fínt rifin parmesan ostur
- Með pönnukökunum skal bera fram:
- 4 egg - elduð eins og þér finnst best
- 8 sneiðar af beikoni
- síróp að eigin vali
Aðferð:
- Hitið ofninn eins lítið og kostur er.
- Blandið saman hveiti, lyftidufti, matarsóda, salti og pipar í stóra skál. Í aðra skál skal píska saman súrmjólk, bræddu smjöri og egginu uns blandað.
- Bætið blautu hráefnunum saman við þurru hráefnin og pískið uns nokkuð gott - má þó vera ögn kekkjótt. Setjið parmesan ostinn út í blönduna og pískið.
- Hitið hefðbundið vöfflujárn (ekki belgískt). Penslið með bræddu smjöri og bakið vöfflurnar eins og lög og reglur gera ráð fyrir.
- Setjið vöfflurnar á disk og setjið egg og tvær sneiðar af beikoni með. Sullið sírópi yfir og rífið loks ögn af parmesan osti yfir.
Hér gefur að líta forsíðu bókarinnar.
mbl.is/