„Það er morgunljóst að kartöflur og ostur passa ótrúlega vel saman,“ segir hinn eini sanni Læknir í eldhúsinu, Ragnar Freyr Ingvarsson. Ragnar kættist á dögunum þegar frétt birtist um að væntanlegur væri á markað nýr íslenskur ostur. Um er að ræða ostinn Tind sem er óðalsostur sem fær að þroskast í 12 mánuði.
„Mér finnst sérstaklega gaman að nota svona osta í matargerð. Ég komst á bragðið með þetta þegar ég bjó í Svíþjóð. Þar kynntist ég osti – Västerbotten – sem mér finnst mjög ljúffengur og finnst gott að nota, t.d. í gratín. Hann fær einmitt að þroskast í nokkra mánuði eins og Tindur – sem er líka þeim kostum gæddur að bráðna vel.“
„Faðir minn á heiðurinn af þessari uppskrift – en hann er mikill unnandi kartaflna, eiginlega sama hvernig þær eru eldaðar. En þegar maður veltir þeim upp úr hvítlauksolíu og osti – þá er maður að miða á stjörnurnar.“
Ljúffengir ofnbakaðir kartöflustaflar með hvítlauksolíu og 12 mánaða svörtum Tindi úr Skagafirði
Fyrir sex
Þetta er auðvitað sára einföld uppskrift – en það er oft þannig – einfalt og sérlega ljúfengt.
Ostinn nálgaðist ég í Ostabúðinni á Skólavörðustígnum. En mér skilst að hann komi ekki í almenna sölu fyrir en eftir áramótin. Fram að þeim tíma má að sjálfsögðu nota venjulegan Tind – hann gefur þessum ekkert eftir þó svo hin svarti hafi aðeins dýpri karakter. Þá má að sjálfsögðu líka prófa Búra eða cheddar. Það myndi án efa slá í gegn þar sem allir þessir ostar eiga það sameiginlegt að bráðna vel!
Aðferð: