Við sláum ekki hendinni á móti heitu súkkulaði og sérstaklega ekki ef það inniheldur vanilluís og Grand Marnier. Hér er sannkallað jólasúkkulaði í skrautbúningi fyrir fullorðna en það má að sjálfsögðu sleppa líkjörnum og drekka súkkulaðið þannig.
Heitt súkkulaði með vanilluís og Grand Marnier
- 1 vanillustöng
- 1 l léttmjólk
- 4 msk. sykur
- 100 g dökkt súkkulaði
- 2 msk. kakóduft
- Salt á hnífsoddi
- 1 kanilstöng
- 1 stjörnuanís
- 4 kardimommur, heilar
- Strimill af appelsínuberki
- ½ L vanilluís
- 1 dl Grand Marnier
Aðferð:
- Opnið vanillustöngina og skafið kornin úr. Hitið 1 dl af mjólkinni með vanillukornunum, sykrinum, súkkulaðinu, kakóinu og saltinu. Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
- Setjið restina af mjólkinni ásamt kryddum og appelsínuberkinum út í pottinn og hitið upp rólega þar til drykkurinn er orðinn heitur án þess að sjóða. Slökkvið þá undir og látið standa í allt að 1 klukkustund.
- Hitið súkkulaðið upp aftur og hellið því næst Grand Marnier út í og berið fram með vanilluís.