Til er það hráefni sem ekki margir þekkja en er þeim eiginleikum bundið að allt sem það kemur nálægt verður umtalsvert betra. Þá ekki síst steiktur matur eins og í þessu tilfelli þar sem steiktur fiskur er tekinn upp á næsta stig og gott betur.
Við erum að talal um panko rasp - ekki paxo - en hægt er að fá það nokkuð víða. Þessi uppskrift kemur frá Maríu Gomez á Paz.is og segir hún að þessi uppskrift njóti gríðarlegra vinsælda á hennar heimili.
„Mér finnst steiktur fiskur mjög oft vera stökkur rétt fyrst eftir steikingu en verða síðan fljótt linur. En þessi hér er sko ekki þannig !! Hann helst stökkur í langan tíma eftir steikingu og oft hafa krakkarnir borðað afgangana af honum kalda, haldandi á heilu stykki í hendinni sem þau elska að dýfa í tómatssósu. Mér hins vegar finnst hann rosa góður með púrrulauksjógúrtsósu og Sriracha sósu (ekki blandað saman, heldur hlið við hlið á disknum).“
Matarblogg Maríu er hægt að nálgast HÉR.
Besti steikti fiskur í heimi
- 800 gr -1 kg ýsa
- 1 dl hveiti
- 2 egg
- 1 bolli panko rasp
- 1 bolli rifinn ferskur parmesan (kaupið heilt stykki og rífið sjálf niður ekki kaupa rifinn í dollu)
- Salt
- Lime pepper frá Santa María (fæst í bónus) má sleppa en gerir rosa gott
Sósa:
- 1 bolli grísk jógúrt
- 1 msk hlynsíróp eða agave
- 1/2 pakki Toro púrrulaukssúpa eða meira…..smakkið og notið súpuna eftir smekk
Aðferð:
- Skerið fiskinn í sneiðar og leggið á eldhúspappír til að ná mesta raka úr.
- Setjið hveiti á einn disk, egg á annan og panko blandað með parmesan á þriðja.
- Saltið egginn með 1/4 til 1/2 tsk salti og piprið með lime pepper og hrærið vel.
- Byrjið á að velta fiskinum upp úr hveitinu og hristið allt umframhveiti af.
- Veltið næst upp úr eggjunum og hristið umframegg af.
- Veltið svo síðast upp úr Panko parmesan blöndunni.
- Raðið stykkjunum á disk við hlið hvor annars, en ekki ofan á hvort annað, og hitið góða olíu á pönnu (ég notaði isio 4).
- Steikið svo fiskinn á pönnuni í vel heitri olíunni þar til hann er orðin gylltur og fagur
- Þegar hann er tekinn af pönnunni er gott að leggja hann á disk með eldhúspappa á til að olían leki í pappann.