Góðir kjúklingaréttir eru gulli betri og þessi réttur er sérlega vinsæll og ómissandi í allar veislur og afmæli. Hann kemur úr smiðju tengdamóður Berglindar Hreiðars á Gotteri & gersemum og segir Berglind að hann slái alltaf í gegn.
Kjúklingarétturinn hennar Ollýar
Hægt er að rífa heilan grillaðan kjúkling en einnig er sniðugt að nýta afganga af kalkún eða öðru slíku sem oft er á boðstólnum yfir hátíðarnar.
- 1 eldaður, rifinn kjúklingur
- ½ smátt saxaður laukur
- 2 x Campells „Cream of Chicken“ súpur (2 x 295 g)
- 500 ml rjómi
- 8 msk majónes frá E. Finnsson
- Karrý, salt og pipar
- 200 g gular baunir
- Rifinn ostur
- Smjör til steikingar
Aðferð:
- Steikið saxaðan laukinn upp úr smjöri og karrý (um það bil 1 msk, fer eftir styrk kryddsins).
- Þegar laukurinn er mjúkur í gegn má hella rjómanum, súpunum og majónesinu saman við og blanda vel á meðalháum hita.
- Kryddið sósuna til með salti og pipar og bætið að lokum rifnum kjúklingi ásamt gulum baunum við og blandið vel.
- Hellið kjúklingablöndunni í eldfast mót, rífið ost yfir og hitið við 190°C í um 20-25 mínútur eða þar til osturinn fer að gyllast.
- Hægt er að útbúa þennan ofnrétt deginum áður, plasta og geyma í ísskáp og hita áður en veisla byrjar. Stundum höfum við reyndar líka gert þennan rétt sem kvöldverð og hitað hrísgrjón með honum og gott baguette brauð.