Hér gefur að líta saltfiskuppskrift úr smiðju Ragnars Freys Ingvarssonar - sem er landsmönnum betur þekktur sem Læknirinn í eldhúsinu. Hér fáum við dýrari týpuna af uppskrift þar sem myndband fylgir með.
Ekki amalegt það enda alltaf gott að sjá hvernig sérfræðingarnir bera sig að.
Aðferð:

Flysjið og sjóðið kartöflurnar í söltuðu vatni

Maukið hvítlaukinn og blandið saman við soðnar kartöflur

Hrærið saman smjöri og rjóma og saltið og piprið

Blandið hvítlaukssalti, papríkudufti og pipar saman við hveitið.

Veltið fisknum upp úr hveitinu og steikið í heitri olíunni, 3 mínútur á roðhliðinni og 30-60 sekúndur á hinni.

Þegar fisknum er snúið er ólífunum og tómötunum bætt á pönnuna ásamt smátt skorinni steinselju. Raðað á disk og skreytt með sítrónu.