Vinir okkar vestanhafs hjá Etsy.com eru búnir að spá fyrir um eldhústrend komandi árs. Hingað til hafa kaktusar, flamingó og ananas ráðið ríkjum í aukahlutum fyrir heimilið, en það mun víkja.
Flamingó-fuglinn má fara að vara sig því lamadýrið er komið til að vera. Þessi mjúku dýr með sérstaka andlitið sitt er auðvelt að elska.
mbl.is/Inkyandindigo
Monstera-plantan mun sjást víða í aukahlutum eldhússins; í servíettum, viskastykkjum og jafnvel sem hitaplatti.
mbl.is/Kraftille
Munstraðar flísar verða sjóðheitar bæði á gólf og líka á veggjum. Víða má kaupa límmiða til að setja á flatar flísar sem þurfa ódýra upplyftingu og alltaf er hægt að skipta út.
mbl.is/QUADROSTYLE