Það verður ekki hjá því komist að kynnast þessum unga myndarlega bakara aðeins nánar, sem virðist vera ansi lunkinn við baksturinn á meðan hann situr fyrir ber að ofan.
Matt er ekki nema 26 ára gamall, hálfnakinn og bakar eins og enginn sé morgundagurinn. Hann byrjaði að blogga undir nafninu „Toplessbaker“ sem var í upphafi meira gert í gríni en alvöru, en starfar við það að fullu í dag - vinsældir hans eru lygilegar. Kökurnar hans og kræsingar eru ekki af verri endanum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.