Sænski tískurisinn hefur heillað okkur upp úr skónum enn eina ferðina. Rétt fyrir jólin var fyrstu myndum úr vorlínu H&M Home hleypt í loftið sem gáfu okkur tilfinningu á því sem koma skal á komandi mánuðum – og nú hafa fleiri fréttir af fögrum eldhúsnauðsynjum bæst í hópinn.
Nýjungarnar eru eins ólíkar og þær geta verið. Við erum að sjá grafísk munstur, svartar rendur í bland við ljósa litatóna – bleika, græna og gula. Blómlega skreyttir kaffibollar með gyllingu sem kalla svo sannarlega á vorið heim í hús ásamt fléttaðri brauðkörfu. Við getum eiginlega ekki beðið eftir að hitatölurnar fari að hækka og vörurnar rati í verslanir landsins.