„Oft þegar hefur verið lambalæri í sunnudagsmatinn hjá okkur hef ég haft lambakebab úr afgangskjötinu daginn eftir. Eða gert úr því samlokur með remúlaði og steiktum lauk sem minna mikið á samloku með roastbeef,“ segir María Gomez á Paz.is um hugmyndina á bak við þennan rétt. Hún segir þetta snilldarleið til að nýta afgangana en svo sé auðvitað hægt að setja það sem hugurinn girnist á milli.
„Í kebabinn finnst mér gott að hafa hráefni sem minna mig á Mið-Austurlönd eða Marokkó. Döðlur, cous cous, ólífur og gúrkujógúrtsósa með myntu er alveg fullkomið saman.“
Lambakebab með myntujógúrtsósu
- Afgangskjöt af lambalæri eða lambahrygg
- Grófar tortillakökur úr súrdeigi (frá Santa María)
- Ólífur grænar og svartar lagðar í olíu og kryddaðar með salti og þurrum kryddjurtum eins og timian og basil
- Kál, tómatar og gúrka
- Soðið cous cous
- Döðlur (ferskar bestar)
- Fetaostur eða ferskar mozzarella kúlur litlar
- Gúrkumyntujógúrtsósa
Aðferð
- Gerið cous cous og skerið kjötið niður í þunna bita
- Hitið tortillu-köku (best á samlokugrilli eða grillpönnu) og setjið svo á hana cous cous
- Raðið kjötinu þar ofan á
- Setjið svo grænmeti og döðlur með því að rífa þær í tvennt út á og passið að taka steininn úr ef þær eru ferskar
- Setjið svo fetaost eða þess vegna ferskan mozzarella-ost út á, ólífurnar og síðast sósuna
- Gott er að hafa svo sósu til hliðar á disknum til að dýfa í
- Einnig er mjög gott að loka kökunni og setja sósu ofan á samskeytin og smá ólífuolíu yfir og kryddjurtir
- Mæli með að borða það þá með hníf og gaffli