Það þarf ekkert að orðlengja neitt frekar um þetta gourmet fæði sem komið er úr smiðju hennar Svövu Gunnars á Ljúfmeti & lekkerheitum.
Svínalundin stendur ávallt fyrir sínu og rjómasósan er til að æra óstöðuga af gleði.
Svínalund í rjómasósu
(uppskrift fyrir 5-6)
- 2 svínalundir (ég gleymdi að athuga þyngdina en þær voru í meðalstærð)
- salt og pipar
Sósa:
- 5 dl rjómi
- 2 msk. kálfakraftur
- 2 msk. dijon-sinnep
- 2 tsk. salvía (þurrkuð)
- 1 tsk. hunang
- nokkrir dropar af sítrónusafa
- salt og pipar
Aðferð:
- Skerið svínalundirnar í um 2,5 cm þykkar sneiðar og kryddið með salti og pipar.
- Bræðið smjör og olíu saman á pönnu og steikið kjötið þar til það hefur fengið steikingarhúð á báðum hliðum.
- Takið kjötið af pönnunni og leggið til hliðar. Setjið öll hráefnin fyrir sósuna á pönnuna (ekki þrífa hana eftir kjötið!) og látið sjóða saman í nokkrar mínútur.
- Leggið kjötið í sósuna og látið sjóða við vægan hita í 5 mínútur.
mbl.is/Svava Gunnarsdóttir