Ókey - þetta er formlega girnilegasta pítsa sem sést hefur á norðurhveli jarðar frá því um aldamótin. Eða því sem næst. Hún verður prufuð á mínu heimili í kvöld því þrátt fyrir að ég sé oft á tíðum kjánalega fastheldin á mitt meðlæti verð ég að prófa þetta.
Það er enginn annar en Ragnar Freyr Ingvarsson a.k.a. Læknirinn í eldhúsinu sem á heiðurinn að þessu meistaraverki en matarbloggið hans er hægt að nálgast HÉR.
mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson
Ljúffeng flatbaka með steiktu beikoni, sætum döðlum og piparosti í tilefni alþjóðalega pizzudagsins
- 700 gr hveiti
- 300 ml volgt vatn
- 2 msk jómfrúarolía
- 25 gr ger
- 25 gr sykur
- 2 tsk salt
Tómatsósan
- 1 lítill laukur
- 3 hvítlauksrif
- 2 msk jómfrúarolía
- 1 dós góðir niðursoðnir tómatar
- 1 msk tómatpúré
- salt og pipar
- 2-3 msk hökkuð fersk steinselja/basil
Álegg
- Steikt beikon
- Piparostur
- Döðlur
- handfylli af rifnum osti
Aðferð:
- Fyrst er það deigið. Setjið hveitið í skál. Svo saltið. Og á eftir því olíuna.Vekið gerið í volgu vatni ásamt sykrinum og þegar að það er búið að freyða í um 15 mínútur er hægt að byrja að hella því varlega saman við. Hnoðið vandlega í fimm til tíu mínútur. Setjið svo viskastykki yfir og setjið til hliðar til að hefast í um klukkustund.
- Á meðan deigið er að hefast - útbúið þið tómatsósuna. Steikið fyrst laukinn og hvítlaukinn í olíunni, saltið og piprið. Setjið svo tómatana, púréið og hitið að suðu og látið malla við lágan hita í 15-20 mínútur. Setjið svo kryddjurtirnar, saltið og piprið og blandið saman með töfrasprota.
- Svo er bara að fletja út deigið.
- Og það er nú lítið mál þegar maður er með svona liðtækan aðstoðarmann!
- Skerið beikon og steikið þar til það er stökkt.
- Fjarlægið steininn úr döðlunum og rífið þær niður.
- Svo er bara að raða þessari dásemd saman, tómatsósa (má líka vera bara með hvítlauksolíu), stökkt beikon, rifnar döðlur og svo þykkar sneiðar af piparosti.
- Bakað í blússheitum ofni þangað til osturinn er bráðnaður og botninn búinn að lyfta sér.
mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson