Ef þú ert matar-nörd eins og við og getur gleymt þér í að skoða matarmyndir á netinu þá erum við með réttu heimasíðuna fyrir þig.
Hún heitir Alyssa Rivers og stendur á bak við síðuna The Recipe Critic þar sem yfir 10 milljónir manna lesa bloggið hennar á mánuði. Það má finna Alyssu á Facebook, Twitter, Instagram, Pinterest og Blog Lovin, svo eitthvað sé nefnt. Eins hefur hún birst í fjölda tímarita og unnið með fyrirtækjum á borð við McCormick og Pillsbury.
Uppskriftirnar hennar eru frábærar, ferskar og oftar en ekki einfaldar í framkvæmd. En hún er einnig með litla netverslun þar sem hún selur fatnað og áhöld sem tengjast mat og má skoða hér.