Hér kemur uppskrift að fljótlegum lágkolvetnamorgundrykk sem jafnframt er ketó ef þú nennir ekki að baka brauð eða brasa egg alla morgna og vilt hvíla gríska jógúrtið!
<strong>Ketó morgunþruman sem reddar deginum</strong>
- 1 avocado
- 1 væn lúka spínat eða grænkál
- 1 límóna - safinn
- 2 cm ferskt engifer skorið í þunnar sneiðar (til að losna við þræðina)
- 300 ml vatn (má setja kókosmjólk til drykkjar á móti vatninu 50/50)
- 10 vanillu- mintu- eða kókosstevíudropar
- lúka ferk minta (má sleppa)
- 1/4 agúrka
- 1 msk. Husk-trefjar
Allt sett í blandara og látið tryllast uns silkimjúkt.