Nýjasta æðið er kók og mjólk

Kók og mjólk er nýjasta æðið samkvæmt Twitter-notendum.
Kók og mjólk er nýjasta æðið samkvæmt Twitter-notendum. mbl.is/JamesFelton

Ertu í hópi þeirra sem eru alltaf til í að prófa eitthvað nýtt og öðruvísi? Twitter virðist vera með puttann á púlsinum hvað þetta varðar en nýverið skrifaði James Felton að Coke og mjólk séu besta blandan sem þú munt smakka í dag.

Viðbrögðin voru misjöfn við drykknum og einhverjir fussuðu á meðan aðrir voru spenntir að prófa. Einhverjir vildu meina að drykkurinn minnti óneitanlega á Coke Float – sem er vinsælt sem eftirréttur. Þar er kúlu af vanilluís komið fyrir á botni í glasi og kókdós hellt yfir. Spurning um að bjóða gestum næst upp á kók og mjólk!

James Felton vill meina að kók og mjólk sé besta …
James Felton vill meina að kók og mjólk sé besta blandan og það þarf ekkert að ræða það neitt frekar. mbl.is/JamesFelton
Það eru fleiri aðdáendur mjólkur og kóla þarna úti.
Það eru fleiri aðdáendur mjólkur og kóla þarna úti. mbl.is/Twitter
mbl.is/Twitter
mbl.is/Twitter
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert