Þetta er aðferð sem er ekki notuð á mörgum heimilum en ætti svo sannarlega að vera það. Hér erum við með taco a la Eva Laufey og eins og við höfum áður sagt þá komast fáir með tærnar þar sem Eva Laufey hefur hælana.
Hér hefur Eva brugðið á það ráð að steikja tortilla-pönnukökuna og OMG (afsakið) hvað það kemur vel út.
Matarbloggið hennar Evu er hægt að nálgast HÉR.
Bragðmikil kjúklingalæri á stökkri tortilla-vefju
Uppskrift miðast við fjóra
800 g kjúklingalæri, beinhreinsuð
2 msk. ólífuolía
1/2 límónu, börkur og safi
2 tsk. paprikuduft
1 tsk. kummin
1 tsk. kjúklingakrydd
1 tsk. allrahandakrydd
Salt og pipar
1 rauð paprika
1 laukur
Tortillavefjur
Ferskt salsa, uppskrift hér að neðan
Hreinn fetaostur
Kóríander
Aðferð:
Forhitið ofninn í 200°C (blástur).
Setjið kjúklingakjötið í skál ásamt ólífuolíu og þeim kryddum sem talin eru upp hér að ofan. Kreistið safann úr límónu yfir og rífið börkinn sömuleiðis yfir. Gott er að leyfa kjúklingakjötinu að liggja í marineringunni í svolitla stund í kæliskáp ef þið hafið tíma.
Leggið kjúklinginn í eldfast mót, skerið papriku og lauk og dreifið yfir kjúklingakjötið. Setjið réttinn inn í ofn við 200°C í 25 mínútur.
Berið kjúklinginn fram með stökkri tortilla-vefju sem þið steikið upp úr olíu, fersku salsa, hreinum fetaosti og smátt söxuðum kóríander.
Ferskt salsa
2 tómatar, kjarnhreinsaðir
1/2 laukur
1 lárpera
1/4 tsk. chili
Salt og pipar
1 msk. ólífuolía
1/2 límóna
Aðferð:
Saxið tómata, lauk og lárperu smátt og setjið í skál.
Saxið chili mjög smátt og bætið út í ásamt ólífuolíu og límónusafa.
Kryddið til með salti og pipar.
Geymið í kæli þar til þið berið það fram.