Þetta er einn af þessum eftirréttum eða veisluréttum sem klikka aldrei. Hér í sjóðheitri og bragðlaukatryllandi útgáfu Berglindar Guðmundsdóttur á GRGS.is.
Maður heinlega þarf ekki meira...
Einföld skyrkaka með Daim-kurli
- 1 pakki hafrakex með súkkulaði
- 70 g smjör
- 2 pakkar Daim-kurl
- 500 ml rjómi
- 1 stór dós vanilluskyr
- 1 askja hindber
Aðferð:
- Myljið kexið smátt.
- Bræðið smjör og blandið mulda kexinu saman við. Setjið blönduna í bökunarform (26 cm) og geymið í kæli þar til botninn hefur harðnað.
- Setjið helminginn af Daim-kurlinu yfir botninn.
- Þeytið rjómann og blandið saman við vanilluskyrið. Setjið yfir kexbotninn og yfir það setjið þið afganginn af Daim-kurlinu og berin.
- Setjið plastfilmu yfir og geymið í ísskáp í 6 klst. áður en hún er borin fram.
mbl.is/Berglind Guðmundsdóttir