Það er mikilvægt (fyrir suma) að vera með puttann á púlsinum hvað sé nýtt og spennandi að gerast í tískustraumum hvað eldhús varðar. Litaðir tónar, aukið vinnupláss, sjálfbærni eða jafnvel nostalgía – hvað er að trenda í dag? Við höfum tekið saman eldhústrend frá nokkrum eldhúsframleiðendum hér fyrir neðan sem þú þarft að vita af.
Vertu óhrædd/ur við að setja lit á sjálfa eldhúsinnréttinguna. Það skapar persónuleika og eykur kontrastinn sem þú nærð ekki svo vel með hvítum innréttingum.
mbl.is/Multiform
Línóleum er náttúrulegt efni sem hefur verið notað í áraraðir á borðplötur og gólf. Eldhúsframleiðandinn JKE hefur nú þróað eldhús framleitt úr línóleum sem er slitsterkt, með mjúkri áferð og auðvelt að þrífa.
mbl.is/JKE
HTH eru óhræddir við að blanda saman litum og áferðum, hér með grænlakkaða eik í eldhúseyjunni, hvíta borðplötu og eikarinnréttingu á móti.
mbl.is/HTH
Matt og svart er hámóðins þessa dagana. Þetta fallega eldhús er frá framleiðandanum KVIK og er með silkimjúka áferð.
mbl.is/Kvik
Boffi er með puttann á því sem koma skal í framtíðinni. Hér eru eldhúseiningar sem má raða saman eftir þörfum – draga út og færa til, allt eftir því hvað hentar þér.
mbl.is/Boffi
Innblásið frá stóreldhúsum eru nú fáanlegar nútímalegar kælieiningar sem þú raðar saman eftir eigin þörfum.
mbl.is/Abimis
Það er mikið rætt um hvernig við getum verið meira praktísk í framtíðinni og hvernig við nýtum plássið í kringum okkur. Fyrirtækið Aran Cucine er með flott lausn af eldhúseyju sem þú dregur einfaldlega út og ert þar að leiðandi komin með fullbúið eldhús.
mbl.is/Arann Cucine
Hér er unnið eftir bestu gæðum og hugsað um náttúrulega eiginlega efnisviðsins. Framleiðandinn 1920 Riva er hér með nútímalegt eldhús með nostalgíu.
mbl.is/1920 Riva