Þetta er það sem við köllum almennt hina fullkomnu ostaköku. Hátíðleg og algjörlega frábær þannig að hér ætti ekkert að klikka.
Það er meistari Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á heiðurinn að þessari snilld.
mbl.is/Bergind Hreiðarsdóttir
Toblerone ostakaka með hindberjakeim
- 1 pk Oreo kex mulið (16 stk)
- 70 g brætt smjör
- 500 g Philadelphia rjómaostur við stofuhita
- 170 g sykur
- 1 msk. bökunarkakó
- 3 gelatín blöð (60 ml vatn)
- 200 g brætt Toblerone + meira til skrauts
- 1 tsk. vanilludropar
- 250 ml léttþeyttur rjómi
- 125 g maukuð hindber + meira til skrauts
Aðferð:
- Blandið saman muldu Oreo kexi og bræddu smjöri, þrýstið í 20cm springform sem búið er að spreyja með matarolíuspreyi og setja bökunarpappír í botninn. Gott er að þrýsta vel í botninn og örlítið upp á kantana. Kælið í að minnsta kosti klukkustund.
- Leggið gelatínblöð í kalt vatn í nokkrar mínútur. Setjið 60 ml af vatni í lítinn pott og hitið að suðu, vindið þá gelatínblöðin sem eru í kalda vatninu og hrærið saman við sjóðandi vatnið, einu í einu þar til þau eru öll uppleyst.
- Hellið þá yfir í skál og leyfið að ná stofuhita.
- Þeytið rjómaost og sykur þar til vel blandað og bætið þá bökunarkakó saman við og hrærið vel.
- Bætið gelatínblöndunni, bræddu Toblerone og vanilludropum saman við rjómaostablönduna og hrærið saman.
- Að lokum er þeytta rjómanum vafið saman við þar til slétt og fín blanda hefur myndast og þá er henni hellt yfir Oreo botninn.
- Skvettið hindberjamaukinu óreglulega yfir toppinn og dragið til með hníf og kælið í að minnsta kosti 3 klst eða yfir nótt þar til ostakakan verður stíf.
- Losið kökuna þá úr forminu og færið yfir á kökudisk og skreytið með ferskum hindberjum og Toblerone.
mbl.is/Bergind Hreiðarsdóttir