Hún er ekki nema 9 ára gömul og heitir Riley Dashwood, stelpan sem hermir eftir frægum í fréttum. Riley er með um 100 þúsund fylgjendur á Instagram eftir að hafa birt myndir af sér þar sem hún líkir eftir klæðnaði stórstjarna á borð við Kim Kardashian, Rihanna og Miley Cyrus – þá á skoplegan máta.
Við sjáum hana taka dressið sem Emma Stone bar á Óskarsverðlaunahátíðinni, en Emma var í fatnaði frá Louis Vuitton á meðan Riley líkir eftir með vöfflum.
Foreldrar Riley eru henni til aðstoðar og segjast þau taka um eina mynd á viku og eyða frá 15-45 mínútum í hverja hugmynd. Allt var þetta til gamans gert í upphafi sem svo vatt heldur betur upp á sig í vinsældum.
Þessi mynd af Kim er frá árinu 2016 en dressið dettur aldrei úr tísku. Riley fer hér aðra leið með álpappír við hönd.
mbl.is/Shutterstock/Riley Dashwood
Emma Stone hér í fatnaði frá Louis Vuitton á óskarsverðlaunahátíðinni. Riley er hér í samskonar dressi búið til úr vöfflum.
mbl.is/Shutterstock/Riley Dashwood
Árið 2011 birtist Nicki Minaj með þessa hárkollu á uppboð. Brokkolí og blómkál var undirstaðan að kollunni hennar Riley.
mbl.is/Shutterstock/Riley Dashwood
Zendaya í rauðum sportgalla, brúnum jakka og hvítum háhæluðum skóm á Michael Kors sýningu á New York Fashion Week. Og Riley hér sem pulsa í hvítum sokkum.
mbl.is/Shutterstock/Riley Dashwood
Hér notar Riley brauðhleifa sem magavöðva til að herma eftir fitness bloggaranum Julian Daigre.
mbl.is/Shutterstock/Riley Dashwood
Klósettpappírútfærsla á dressi Sabrinu Carpenter.
mbl.is/Shutterstock/Riley Dashwood
Ashanti hér í jakka einum saman - og Riley í pappakassa einum saman.
mbl.is/Shutterstock/Riley Dashwood
Joy Villa er lítið þekkt söngkona sem klæddist þessu dressi á Grammy verðlaununum árið 2019 en Riley tekur rifjárnið á þetta.
mbl.is/Shutterstock/Riley Dashwood