Það er engin önnur en Eva Laufey sem á þessar dásemdaruppskriftir að lambahrygg og sósu. Reyndar er um að ræða tvær uppskriftir því önnur kemur frá tengamóður hennar og þykir algjör snilld.
Það er ekki hægt að slá hendinni á móti þessu gúmmelaði...
Fylltur lambahryggur
- Lambahryggur ca. 2 kg, úrbeinaður
- 1 – 2 msk. Bezt á lambið krydd
- Salt og pipar
Fylling:
- 100 g furuhnetur
- 1 krukka sólkysstir tómatar
- 100 g saxaðar döðlur
- 1 hvítlauksrif
- 2 hvítlauksrif
- Salt og pipar
- 3 msk. fetaostur
Aðferð:
- Forhitið ofninn í 180°C.
- Látið kjötborðið úrbeina lambahrygginn eða úrbeinið sjálf.
- Setjið öll hráefnin sem eiga að fara í fyllinguna í matvinnsluvél og maukið vel.
- Setjið fyllinguna á milli hryggjarvöðvanna og leggið lundirnar þar ofan á.
- Mótið rúllu og vefjið seglgarni utan um rúlluna og kryddið hrygginn með salti, pipar og Bezt á lambið kryddi eða öðru góðu kryddi sem passar á lambakjöt (ég gleymdi að kaupa seglgarn en notaði tannstöngla að þessu sinni!).
- Setjið lambahrygginn í eldfast mót, hellið hálfum lítra af soðnu vatni í fatið og inn í ofn við 180°C í 45 – 50 mínútur. Þegar 15 mínútur eru eftir af eldunartímanum er ágætt að hækka hitann í 210°C.
- Leyfið kjötinu að hvíla í 10 mínútur áður en þið skerið það og berið fram, hellið soðinu frá og geymið í sósugerð.
Ljúffeng sósa með lambakjöti
- 300 – 400 ml soð
- 12 – 14 sveppir
- 2 msk. smjör
- Salt og pipar
- 500 ml rjómi
- Sósuþykkjari
- 1/2 – 1 lambakjötsteningur
Aðferð:
- Skerið sveppi smátt og steikið upp úr smjöri, kryddið með salti og pipar.
- Hellið soðinu og rjómanum saman við og náið upp suðu.
- Bætið lambakjötskrafti og smávegis af sósuþykkni út í, hrærið stöðugt í sósunni og lækkið hitann.
- Þegar þið eruð ánægð með áferðina á sósunni er hún tilbúin og munið að það er mjög mikilvægt að smakka sig til.
Hægeldaður lambahryggur eins og tengdó gerir
- 1 hryggur ca. 3 kg
- Salt og pipar
- 500 – 600 ml soðið vatn
- ½ lambakjötsteningur
Aðferð:
- Forhitið ofninn í 230°C.
- Kryddið hrygginn með salti og pipar, setjið í eldfast mót og inn í ofn við 230°C í 25 – 30 mínútur.
- Lækkið hitann niður í 150°C, hellið hálfum lítra af soðnu vatni í fatið og leyfið kjötinu að malla í 5 – 6 klst. Það gæti verið að þið þurfið að bæta vatni í fatið einu sinni til tvisvar og þá bara 100 – 200 ml í senn.
- Leyfið kjötinu að hvíla í lágmark 10 mínútur áður en þið berið það fram og sigtið að sjálfsögðu soðið frá og notið í sósugerð.
- - -
Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita...