Hér eru við að tala um svo mikil huggulegheit að maður hreinlega spyr sig hvenær sá dagur renni upp að Linda Ben bjóði okkur í mat. Smekklegheitin ríða ekki við einteyming hér því ekki nóg með að við fáum algjörlega frábæra uppskrift að lambalæri heldur fáum við líka að skyggnast á bak við tjöldin í eldhúsi Lindu.
Fáránlega fínt alveg hreint...
Lambalæri ofnsteikt með hasselback-kartöflum
- Meðalstórt lambalæri
- 3-4 hvítlauksgeirar
- Ferskt rósmarín
- ¾ dl ólífuolía
- 1 tsk þurrkuð steinselja
- 1 tsk þurrkað rósmarín
- 1 tsk þurrkað oreganó
- 1 tsk sítrónupipar
- 1 tsk salt
- 1 tsk paprika
- 8 stk bökunar kartöflur
- 5-6 hvítlauksgeirar
Aðferð:
- Skerið nokkur göt um allt lambalærið, skerið hvítlaukinn í grófar sneiðar og stingið þeim inn í götin ásamt rósmaríni. Setjið ólífuolíu í skál ásamt kryddum, blandið saman og berið olíuna svo á lambalærið, passið að setja vel inn í götin líka. Setjið lærið á bakka og lokið með plastfilmu, látið marinerast inni í kæli í a.m.k.
- Takið lambalærið út úr ofninum og leyfið því að ná stofuhita áður en það er sett í ofninn.
- Kveikið á ofninum og stillið á 200 C.
- Skolið kartöflurnar vel og vandlega, skerið í þær ⅔ niður með 2 mm millibili, passið að skera alls ekki kartöflurnar í sundur. Kryddið með salti og ólífuolíu, nuddið þær þannig að olían og saltið fari niður í skurðina. Raðið kartöflunum í stórt eldfast mót í kringum lambalærið. Raðið hvítlauksgeirum og ferskum rósmarínstilkum um mótið líka. Bætið við meiri ólífuolíu og kryddum ef ykkur finnst vanta. Bakið í ofni í 1 klst. og 20 mín. en fylgist vel með, ef lærið byrjar að brúnast of mikið þá smellið álpappír yfir. Leyfið lærinu að standa í 10 mín. áður en það er skorið. Skreytið með fersku rósmarín og sítrónuberki.