Sumt er hreinlega of girnilegt til að vera satt og þessi Maltesers ostakaka er klárlega þar á meðal. Kakan hreinlega kallar á ilvolg og sólrík sumarkvöld þar sem setið er úti með teppi og lífsins notið.
Það er Hjördís Dögg Grímarsdóttir á Mömmur.is sem á heiðurinn að þessari snilld sem engan ætti að svíkja.
Maltesers ostakaka
- 2 pokar Maltesers
- 50 g íslenskt smjör – brætt
- 60 g sykur
Fylling:
- 250 ml rjómi frá Gott í matinn
- 100 g flórsykur
- 200 g rjómaostur frá Gott í matinn
- 2 tsk. vanillusykur
- 2 stk. marssúkkulaði – brytjað
- 10 stk Malteserskúlur
Marssósa:
- 3 stk. mars
- 1/2 dl rjómi frá Gott í matinn
Aðferð:
- Myljið Malteserskúlurnar í matvinnsluvél.
- Blandið sykri og bræddu smjöri saman við.
- Setjið blönduna í smurt bökunarform eða eldfastmót og þrýstið henni í mótið og upp með brúninni.
- Þeytið rjómann og blandið rjómaosti saman við ásamt flórsykri og vanillusykri.
- Hrærið blönduna vel og hellið í mótið.
- Setjið Malteserskúlur hér og þar í fyllinguna ásamt brytjuðu marssúkkulaði.
- Búið til marssósuna með því að hita marssúkkulaðið og rjóma.
- Hellið marssósunni síðan yfir fyllinguna.
- Kælið kökuna í frysti í nokkra klukkutíma.
- Berið kökuna fram kalda. Kemur mjög vel út að sáldra muldu Maltesersi yfir kökuna.