Vefjur sem hitta í mark

mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir

Vefjur eru í miklu uppáhaldi hjá undirritaðri enda hlýtur það að teljast ansi snjallt að geta sett allan matinn í eina vefju og rúllað upp. Með því móti er hægt að taka vefjuna með hvert sem er og hún hentar jafn vel í kvöldmatinn eins og í nesti.

Hér er Berglind Hreiðarsdóttir á Gotteri.is með tvær útgáfur af vefjum sem eru hvor annarri girnilegri. 

Suðræna vefjan er hinn fullkomni sumarkvöldverður og svo er hin meira á léttu nótunum. Pikknikkvefjan er góð í nestisboxið, fjallgönguna eða sem hádegisverður að mínu mati en suðræna vefjan er matarmeiri.

Suðræn vefja uppskrift

  • 6 stk. (1 pk) Mission Wraps vefjur með grillrönd
  • 900 g kjúklingabringur (3-4 stk) t.d. Rose Poultry
  • 8-10 msk. Sweet BBQ sósa frá Heinz
  • ⅓ ferskur ananas
  • ½ mangó
  • íssalat
  • rauðlaukur
  • vorlaukur
  • kóríander
  • rifinn ostur
  • salt, pipar, ólífuolía

Aðferð:

  1. Skerið grænmeti og ávexti í litla bita, rífið ost og leggið til hliðar.
  2. Skerið kjúklingabringurnar í litla bita, steikið upp úr ólífuolíu og kryddið til með salti og pipar. Þegar bitarnir eru steiktir í gegn er pannan tekin af hellunni og BBQ sósunni hrært saman við.
  3. Gerið vefjurnar tilbúnar og setjið vel af kjúklingablöndu, rifnum osti og grænmeti og ávöxtum á hverja köku og vefjið upp.
mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir

Hér er svo hin uppskriftin sem kallast Pikknikkvefja og hentar sérdeilis vel í lautarferða á fallegum degi.

Pikknikkvefja uppskrift

  • 5 stk. Mission Wraps vefjur með Quinoa og Chia
  • 10 skinkusneiðar
  • ostsneiðar eftir smekk
  • 4 tómatar skornir í sneiðar
  • íssalat
  • rjómaosta-sinnepssósa (sjá uppskrift að neðan)

Rjómaosta-sinnepssósa

  • 200 g Philadelphia rjómaostur við stofuhita
  • 2 msk. mjólk
  • ½  tsk. salt
  • ½ tsk. pipar
  • 1 msk. Sweet Yellow mustard frá Hunts

Aðferð:

  1. Smyrjið vel af rjómaosta-sinnepssósu á hverja vefju.
  2. Raðið álegginu á vefjurnar og rúllið þétt upp.  
  3. Skerið aðeins af endunum beggja megin og skiptið hverri vefju síðan í fjóra bita.
  4. Festið hvern og einn bita saman með tannstöngli eða öðru slíku.
  5. Fullkomið í lautarferðina, nestisboxið eða hvað sem er.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert