Það hafa eflaust margir matgæðingar tekið eftir að helstu bloggarar, bröns-veitingastaðir og aðrir fagurkerar eru að útbúa yfirfyllta ostabakka sem aldrei fyrr. Hér gildir ekki orðatiltækið „meira er minna“ því meira sem fer á bakkann, því fallegri verður hann. Við tókum saman nokkrar gúrme myndir af slíkum bökkum sem gætu verið innblástur fyrir suma.
Nokkur góð ráð til að ná fram fallegum ostabakka:
- Byrjið á því að velja bakka undir góðgætið.
- Veljið ólíka osta með mismunandi bragði og áferð. Fínt er að miða við 3-5 osta á bakkann.
- Fagnið litum og skreytið bakkann með litríkum ávöxtum og grænmeti.
- Ólífur, þurrkaðir ávextir, kex, hnetur og kryddjurtir – möguleikarnir eru endalausir og reynið að notast við þau hráefni sem eru árstíðabundin.
- Farið enn lengra og notið fersk blóm í skreytingarnar.
- Fyllið upp í eyður með berjum eða öðrum litlum ávöxtum til að bakkinn sé með góða fyllingu.
mbl.is/Half Baked Harvest