Hann er einn öflugasti grillari landsins og hálf þjóðin fylgir honum andaktug í hvert skipti sem hann mundar grilltöngina því fáir hafa jafnmikla lagni á grillinu eins og Grindvíkingurinn síkáti Alfreð Fannar Björnsson – betur þekktur sem BBQ kóngurinn á Instagram.
Við fengum Alla til að grilla fyrir okkur og fyrir valinu varð hin goðsagnakennda Tomahawk-steik sem þykir algjört sælgæti.
Tomahawk steik Alla-Tralla
- Steikin tekin út klukkutíma fyrir grillun.
- Rétt áður er sett olía á hana og kryddað með salti, pipar og hvítlauk.
- Grillið hitað upp í 120 gráður og steikin sett á óbeinan hita.
- Leyfið steikinni að hitna hægt og rólega upp í 50 gráður. Takið þá steikina af og kyndið grillið í botn eða upp í 300 gráður.
- Þá er steikin brúnuð vel í mínútu á hvorri hlið til að hún fái fallegar grillrendur.
- Með þessu eru bornar fram mini hasselback-kartöflur sem voru toppaðar með salti og timjan.
- Einnig var boðið upp á heimagerða chimichurri-sósu sem Alla finnst ómissandi með nautakjöti auk smjörsteiktra sveppa og strengjabauna. Að lokum var beinið gullhúðað með 24 karata matargulli – en ekki hvað.
Grillráð Alla-Tralla:
- Hafa grillið hreint. Alltaf. Gott er að hita grillið og bursta grindina áður en byrjað er að grilla og svo á eftir.
- Nota kjöthita/kjarnhitamæli því það er kjarnhitinn sem segir til um hvort kjötið er til, ekki tíminn.
- Leyfið kjötinu að hvíla eftir grillun.
- Það má grilla allan mat – allt árið. Grill fer ekki í matgreinarálit og það má grilla kökur, vöfflur eða poppa popp.
- Allt kjöt sem er í þykkari kantinum er gott að taka úr kæli nokkru áður en það er grillað svo að grillunin verði jafnari.