Svalasti aukahluturinn í sumar

Íspinnamót eru skemmtileg afþreying fyrir krakka að dunda sér í …
Íspinnamót eru skemmtileg afþreying fyrir krakka að dunda sér í eldhúsinu. mbl.is/Kokka

Það þarf vart að taka fram hversu dásamlega sumardaga við erum búin að fá til þessa og vonandi heldur það áfram – við gætum vel vanist þessu.

Við rákumst á stórskemmtileg íspinnamót hjá Kokku sem munu eflaust gleðja krakkaormana okkar. Það vekur fátt meiri spennu hjá krökkum en að útbúa sinn eiginn klaka og láta reyna á þolinmæðina á meðan hann er í frysti.

Ýmsar gerðir eru í boði svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi – róbótar, sverð og jafnvel kaktusar sem stinga þó ekki og eru alveg hættulausir.

mbl.is/Kokka
mbl.is/Kokka
mbl.is/Kokka
mbl.is/Kokka
mbl.is/Kokka
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert