Það er ýmislegt sem hafa þarf í huga þegar motta er valin í eldhúsið því mottur í eldhúsrýmum þurfa að þola mat af ýmsum toga og þær þurfa að geta tekið við álaginu sem fylgir eldhússtörfunum. Plastmottur hafa þótt vinsælar og oftar en ekki má snúa þeim við og nota báðar hliðar. Annars er gaman að poppa upp rýmið með litríkri mottu, sér í lagi ef þú ert með hvíta innréttingu.
Ef þú ert með parket á gólfunum kannastu eflaust við að gólfflöturinn á það til að slitna meira þar sem við erum að sýsla hvað mest í eldhúsinu – yfirleitt við eldavélina eða vaskinn. En ef þú ert með flísar í eldhúsinu ertu kannski í þeim hugleiðingum að brjóta aðeins upp steminguna í rýminu og gera það hlýlegra. Hér fyrir neðan eru nokkrir punktar sem gott er að hafa í huga.
- - -
Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita...
Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl