Lambaprime er með betri bitum sem hægt er að grilla og hér gefur að líta uppskrift með austurlensku ívafi sem er algjörlega upp á tíu. Það er meistari Berglind Guðmunds á GRGS sem á heiðurinn að þessari snilld.
Grillað lambaprime í sætri chili-sósu
- 1 kg lambaprime frá Norðlenska
- 1 dl appelsínusafi
- 1/2 dl sweet chili-sósa
- 2 msk. soya-sósa
- 2-3 hvítlauksrif
- salt
- pipar
Aðferð:
- Setjið appelsínusafa, chili-sósu, soya-sósu og pressuð hvítlauksrif saman í skál og hrærið. Saltið og piprið.
- Setjið kjötið í poka með rennilás og hellið marineringunni þar í. Leyfið að marinerast helst yfir nótt.
- Takið kjötið út nokkrum klukkutímum fyrir eldun og leyfið því að standa við stofuhita.
- Grillið með kjöthitamæli þar til kjötið hefur náð 52° C.
- Takið af grillinu og leyfið að standa í 10-15 mínútur áður en kjötið er skorið.
mbl.is/Berglind Guðmundsdóttir