Sjúklega sætt eldhús í svalasta sumarbústað síðari ára

Dásamlegt 15 fermetra smáhýsi sem hefur allt sem þig vantar …
Dásamlegt 15 fermetra smáhýsi sem hefur allt sem þig vantar í góða slökun yfir helgi. mbl.is/© Anitta Behrendt

Við erum komin í heimsókn í dásamlegt sumarhús á hjólum sem spannar hvorki meira né minna en 15 fermetra og er með allt til alls. Hér er rými fyrir eldhús, salerni, svefnaðstöðu og eldhúsborð. Húsinu var komið fyrir á lóð og eina sem þurfti til var að tengja slöngu fyrir vatnið.

Húsið er staðsett í Danmörku, en eigendurnir eru sannkallaðir fjarsjóðsmenn – því þau hafa í gegnum árin verið dugleg á flóamörkuðunum þar í landi og safnað að sér ýmsum hlutum sem komu að góðum notum í þessu litla smáhýsi.

Hér er allt sem þú þarft á að halda til að ná fullkominni slökun. Rúm, gott kaffi og salerni. Ekkert sjónvarp eða önnur raftæki sem stela athyglinni frá umhverfinu í kringum húsið. Spennandi bók liggur við hlið rúmsins og mun halda þér við efnið yfir helgina. Hljómar vel ekki satt?

Þrátt fyrir fáa fermetrafjölda rúmar húsið eldhúskrók, gashellu, ísskáp og …
Þrátt fyrir fáa fermetrafjölda rúmar húsið eldhúskrók, gashellu, ísskáp og gott kaffi. mbl.is/© Anitta Behrendt
mbl.is/© Anitta Behrendt
Það jafnast fátt við fallegt útsýni að vakna við.
Það jafnast fátt við fallegt útsýni að vakna við. mbl.is/© Anitta Behrendt
mbl.is/© Anitta Behrendt
mbl.is/© Anitta Behrendt
mbl.is/© Anitta Behrendt
Teppi og nesti er það eina sem þú þarft til …
Teppi og nesti er það eina sem þú þarft til að njóta dagsins út í náttúrunni. mbl.is/© Anitta Behrendt
Útieldhús má útfæra á marga vegu og þurfa alls ekki …
Útieldhús má útfæra á marga vegu og þurfa alls ekki að vera flókin. mbl.is/© Anitta Behrendt
Eldhúsáhöld hanga uppi á trjágrein ásamt kryddjurtum.
Eldhúsáhöld hanga uppi á trjágrein ásamt kryddjurtum. mbl.is/© Anitta Behrendt
Húsið í heild sinn - svona eru 15 fermetrarnir nýttir.
Húsið í heild sinn - svona eru 15 fermetrarnir nýttir. mbl.is/© Anitta Behrendt
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert