Ofnbakaður fiskur sem krakkarnir elska

mbl.isl/Berglind Hreiðarsdóttir

Hér er geggjaður fiskréttur sem slær í gegn á hvaða matarborði sem er. Rétturinn er bæði einfaldur og bragðmikill, sprenghollur og stórkemmtilegur. Í þokkabót er þetta fullkominn réttur fyrir þá sem eiga börn sem segja reglulega oj þegar þeim er boðið upp á fisk.

Það er meistari Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á heiðurinn að þessari snilld.

Ofnbakaður fiskur með púrrulaukssósu

Fyrir 4-5

  • 7-800 g þorskur/ýsa (roð- og beinlaus)
  • 4 meðalstórar gulrætur
  • 1 lítill blómkálshaus
  • 1 stk púrrulaukur
  • 1 pakki púrrulauksúpa frá TORO
  • 500 ml matreiðslurjómi
  • 150 ml vatn
  • Bezt á flest hvítlaukskryddblanda
  • Rifinn ostur

Aðferð:

  1. Skerið blómkál í munnstóra bita og gulrætur í sneiðar, gufusjóðið í nokkrar mínútur og raðið því næst í botninn á eldföstu fati.
  2. Skerið fiskinn niður, raðið ofan á grænmetið, kryddið með hvítlaukskryddblöndunni og stráið niðurskornum púrrulauk þar yfir.
  3. Hitið matreiðslurjóma í potti og bætið púrrulaukssúpunni saman við og hrærið vel. Sjóðið saman í nokkrar mínútur og bætið vatninu út í eftir því hversu þykka/þunna þið viljið hafa sósuna.
  4. Hellið sósunni yfir fiskréttinn í fatinu og stráið vel af rifnum osti yfir.
  5. Hitið við 180°C í 35 mínútur.
  6. Gott er að bera réttinn fram með soðnum kartöflum eða hrísgrjónum.
mbl.isl/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert