Það fer ekkert á milli mála að sumarið er tíminn fyrir brúðkaup og aðrar stórveislur. Ekkert er skemmtilegra en að mæta með fallega skreyttan pakka á borðið til að gleðja gestgjafann. Hér má sjá lítil pappablóm, fiðrildi eða jafnvel blómkálshaus - fer eftir því hvernig á þetta er litið og gera pakkann heldur betur sumarlegan.
Best er að notast við crepe-pappír, en það má annars nota hvernig pappír sem er í þetta verk.
Leggið pappírinn saman og klippið út sem blómablöð - jafnvel í ýmsum stærðum. Leggið því næst blöðin saman og setjið band um miðjuna. Skreytið svo pakkann að vild!