Nú fara haust-nýjungar að streyma inn í verslanir og þar eru Søstrene Grene engin undantekning. Nýjungarnar einkennast af eintómum huggulegheitum með blómamynstrum, fléttuðum körfum og keramík eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Diskarekki fyrir nýþvegið leirtau er á meðal þess sem við munum sjá strax í september. Kemur einnig í svörtu.
mbl.is/© Søstrene Grene
Litlar kassahillur með auka díteil á annari hliðinni. Takið eftir að rifflunum sem eru í viðnum og hleypa smáveigis af birtu í gegn.
mbl.is/© Søstrene Grene
Fléttaðar körfur til að hengja á vegginn. Frábærar undir allan þarfan óþarfa.
mbl.is/© Søstrene Grene
Ljós og lekker sporöskjulaga spegill með fléttuðum kanti.
mbl.is/© Søstrene Grene