Þá eru skólarnir að byrja aftur eftir ansi gott sumarfrí. Það er allur gangur á því hvort börn séu skráð í skólamat eða ekki og sum þurfa nesti yfir daginn. Þá kemur oft upp sú staða að jógúrtin er ekki nógu köld eða barnið heimtar djús í öll mál – og þá er gott að luma á nokkrum trixum til að redda sér með.
Kælipokar eru sniðugir til að halda matvælum köldum yfir langan dag. Þú getur auðveldlega rennbleytt nokkra svampa og kreist mestallt vatnið úr þeim aftur og sett í poka og inn í frysti. Þá áttu alltaf til kæliáhald sem þú stingur með í nestistöskuna. Eða fryst flösku af vatni og sett með nestinu.
mbl.is/Kate Bennis
Sætir drykkir eru vinsælir hjá yngri kynslóðinni og alls ekki vinsælt að taka djús með sér alla daga í skólann eða íþróttir. Því er stórsniðugt að setja frosin ber eða ávexti af ýmsum toga út í vatnsbrúsana og jafnvel geyma vatn í könnu með slíku góðgæti inni í ísskáp þegar krakkarnir koma heim úr skólanum. Það ætti að losa við sykurlöngunina.
mbl.is/Kate Bennis
Merkimiðar eru stórsniðugir fyrir þá sem verða alveg ráðvilltir um hvað sé hægt að fá sér að borða þegar heim er komið úr skóla eða frístund. Hér er skipulagið upp á tíu og auðveldar barninu að fá sér eitthvað hollt og nærandi í stað þess að detta ofan í kexskúffuna.
mbl.is/Kate Bennis
Eplatrixið sem við höfum sagt hér frá á vefnum. Að losa kjarnann úr eplinu og skera það svo í báta. Smeygja teygju yfir og þá helst það ferskt og gott og verður ekki brúnt að innan.
mbl.is/Kate Bennis