Sumt er svo einkennilegt að það er varla hægt að færa það í orð án þess að það hljómi kjánalega. Þetta er eitt þessara fyrirbæra en KFC er þessa dagana að prufukeyra nýjustu afurð sína sem er kjúklingaborgari í kleinuhringjabrauði. Eða eitthvað á þá leið. Mjög skrítið hið minnsta og við hér á Matarvefnum erum vandræðalega spennt að vita hvað ykkur finnst um þetta.
Er þetta besta uppfinning allra tíma eða algjörlega galin hugmynd?
Til að byrja með verður þetta tímamótafyrirbæri eingöngu fáanlegt á 40 útibúum staðarins í Bandaríkjunum en hvort þetta nær einhvern tímann alla leið hingað til Íslands skal ósagt látið. En við megum vona...