Pönnukökur eru mikið lostæti og fremur fljótgerðar. Það er því bráðsnjallt að vera í ágætist pönnukökuþjálfun til að geta skellt í létt millimál, morgunmat eða kaffi eftir því sem við á. Það er hin eina sanna Linda Ben sem á heiðurinn af þessari uppskrift og henni bregst ekki bogalistin frekar en fyrri daginn.
Bláberjapönnukökur
- 4 dl haframjöl
- 1 tsk. lyftiduft
- 2 egg
- 1 frekar lítill banani
- 1 krukka grísk haustjógúrt frá Örnu Mjólkurvörum.
- 1 tsk. vanilludropar
- mjólk eftir þörfum
- 3 dl fersk bláber
Aðferð:
- Setjið öll innihaldsefni fyrir utan mjólkina og bláberin saman í blandara og blandið þar til deig hefur myndast.
- Ef deigið er mjög þykkt, bætið þá mjólk út í deigið til að gera það þynnra eftir þörfum, (gott að byrja á 2 msk., hræra og setja svo meira).
- Setjið bláberin í deigið og hrærið saman með sleikju.
- Setjið deig á pönnu, u.þ.b. ½-1 dl, steikið á hvorri hlið á meðalhita, þar til pönnukakan er bökuð í gegn.