Þegar maginn kallar á dekur í morgunmat, þá svarar þessi uppskrift kallinu. Einfalt og gott avocado fyllt með eggjum, bakað í ofni og borið fram með parmesan osti, sítrónusafa, steinselju og radísuspírum. Hildur Rut á heiðurinn að þessari uppskrift og er með svipaða uppskrift í Avocado bókinni sinni, nema þar notar hún rifinn mozzarella í stað parmesan osts.
Fyllt avocado með eggjum og parmesan osti
- 3 þroskuð avokado
- 6 lítil egg
- Salt og pipar
- Safi úr sítrónu
- Rifinn parmesan ostur
- Fersk steinselja, söxuð
- Radísuspírur
Aðferð:
- Skerið avocado í tvennt og skafið úr því til þess að gefa egginu pláss.
- Brjótið eggið í skál og hellið ofan í avocadoið. Ef avocadoið er lítið og eggin stór þá passar ekki öll eggjahvítan ofan í avocadoið. Þá er gott að geyma restina og nota í eitthvað annað.
- Saltið og piprið fyllta avocadoið og bakið í u.þ.b. 10-15 mínútur við 190°C eða þar til eggið er tilbúið.
- Kreistið safa úr sítrónu yfir nýbaka avocadoið.
- Stráið parmesan osti, steinselju og radísuspírum yfir og berið fram.
Avocado fyllt með eggjum og bökuð inn inn í ofni - það gerist ekki betra.
mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir