Það er alls ekki of snemmt að byrja hlakka til jólanna – ekki samkvæmt annarri hverri verslun hér á landi sem er í óða önn að fylla hillurnar með jóladóti.
Klassíska matarstellið Grand Cru frá Rosendahl er komið í jólabúning. Matarstellið ber nafnið Momenst og er framleitt úr hvítu postulíni með gylltum stjörnum á kantinum — fullkomið fyrir árstíðina sem er að ganga í garð. Matardiskarnir koma í þremur stærðum, ásamt pastadiski, skál og bollum sem seldir eru 2 í pakka.