Þetta er mögulega ein fallegasta kaka sem sést hefur. Það var María Gomez á Paz.is sem deildi henni en sagan á bak við uppskriftina er einstaklega skemmtileg.
„Gabríela elsta dóttir mín kom heim með þessa uppkskrift úr vinnuni, en hana hafði hún fengið hjá henni ömmu Stínu sem hún vinnur með. Lengi vel hélt ég að amma Stína væri gömul og sæt feit lítil kona sem bakar kökur alla daga en nei það kom síðar í ljós að hún er jafnaldra mín og alls engin amma enda á hún engin barnabörn.
En hvað um það, þegar matvandasta manneskjan sem ég þekki segir að eitthvað sé gott, þá hlýtur það að vera gott svo ég ákvað að prófa að baka kökuna sem hún hafði ekki getað hætt að tala um síðan hún smakkaði hana.
Og já hún er þrusugóð !! Ekki nóg með það heldur er hún bara svo auðveld í bakstri að hér þarf ekkert nema litla skál og handþeytara ef þið nennið ekki að skíta út hrærivélina.
Glassúrinn er síðan skemmtilega öðruvísi en hann inniheldur Ribena safa sem gerir kremið fallega bleikt og því þarf engan matarlit. Auk þess gerir Ribena bragðið sem rétt nær að skína í gegn að gera töfra með möndlubragðinu.
Ég lofa að þið verðið ekki fyrir vonbrigðum með þessa. Athugið að ég setti hana í stórt mót og tvöfaldaði uppskriftina en venjulega er hún sett í bara venjulegt kringlótt mót og á að vera bara svona þunnur botn með kremi ofan á."
Möndlukaka ömmu Stínu
Botn:
Krem:
Aðferð:
Kremið: